þriðjudagur, 13. mars 2012

Nigth and day


Fyrir margt löngu síðan aðstoðaði ég Maju systur við að sauma rúmteppi. Teppið óx víst upp fyrir okkur, varð eiginlega of þungt í vöfum fyrir okkur og það dagaði uppi í nokkur ár. Þá kom góð vinkona, hún Maja Gunn og bauð fram aðstoð sína sem auðvitað var vel þegin.


Hér má sjá okkur vinkonurnar niðursokknar í lokafráganginn.


Nafnið á teppinu er komið til af litasamsetningunni sem fer frá mjög ljósu yfir í mjög dökkt. Þessir ferningar sem ramma inn miðjuna eru ótrúlega töff.


 Og hér er þetta gullfallega og langþráða teppi komið á rúmið, loksins.

3 ummæli:

  1. Elsku Bogga mín. Þetta er hreint alveg geggjað og hefði aldrei komist á rúmmið án þín og í restina Maju Gunn. Guð laun fyrir mig.

    SvaraEyða
  2. Glæsilegt teppi og viðeigandi nafn... mikið er nú gott að eiga saumavinkonur! :)

    SvaraEyða